17.4.2007 | 00:49
Var að pæla......
Ég held að við séum komin með nýtt forsetaefni þegar Ólafur lætur af störfum á næsta ári. Ég veit um mann með hjartað á réttum stað sem býr á einum fallegasta stað á Íslandi (fyrir utan Hafnarfjörð auðvitað) og hann ætti að flytja með fjölskylduna á Bessastaði. Júlíus Júlíusson er besta efni í forseta sem við höfum í dag og ég meina það. Þeir sem sáu hann í Kastljósinu í gær geta vitnað um það að þarna fer sannur fulltrúi þjóðarinnar.
Júlli á Bessastaði
Athugasemdir
Ég þakka fyrir nýja starfið Og þú getur bókað það að ég smelli á þig einni orðu kenndri við Fálka.
Gangi þér vel í báráttunni.
Júlíus Garðar Júlíusson, 18.4.2007 kl. 08:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.