Berjum helvítin

Nú er bara eitt að gera. Rífum IceSave samninginn  í tætlur í beinni útsendingu í sjónvarpinu og BBC kannski. Slítum stjórnmálasambandi við Breta og Hollendinga. Segjum upp EES samningnum, drögum til baka umsókn að ESB og segjum okkur úr NATO. Spörkum AGS úr landi og hættum í Norðurlandasamstarfinu. Stöðvum ferðir ríkisborgara Bretlands og Hollands  til landsins og þjóðnýtum  starfsemi fyrirtækja þaðan sem eru á Íslandi. Lýsum yfir einhliða eignarhaldi á Rockall svæðinu og Jan Mayen.

Sendum sendinefndir til Kína, Norður-Kóreu, Myanmar(Burma), Íran, Bólivíu og Venesuela og látum þau lána okkur pening og stingum í leiðinni upp á samtökum ríkja utan alþjóðasamfélagsins. Sendum Sigmund og Bjarna  til Rússlands með varnarsamning upp á vasann og leigjum rússum Keflavíkurflugvöll fyrir góðan pening.

Svo bíðum við bara í nokkra mánuði og þá verða allir orðnir vinir okkar.   


mbl.is „Það er búið að semja!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hahahaha já einmitt, góður! ...

Ragnhildur Jónsdóttir, 7.8.2009 kl. 14:19

2 identicon

What a silly little man you are......Oh dear.....

Fair Play (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 14:29

3 identicon

Mmmmm But on the other hand......it might be a good idea.........

Fair Play (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 14:32

4 Smámynd: Sævarinn

Hvaða trúður er þessi Fair Play ? skilur Íslensku en skrifar á ensku ... Við þurfum að fara að dusta rykið af víraklippunum og siga Gæslunni á Breta , Cod War IIII er við sjóndeildarhringinn, reyndar þarf að skipta um í brúnni fyrst, þar eru ekkert nema druslur og gungur sem stýra þjóðarskútunni, svo ég noti nú orð SJS og það er rétt, ég skal berjast til síðasta blóðdropa því ekki skal ein króna af minni innkomu fara í að greiða þennan þrælasamning.

Sævarinn, 7.8.2009 kl. 15:03

5 Smámynd: Sævarinn

Og þetta er snilldar refskák, það þarf að fara að taka þessa Breta í gegn, með illu skal illt út reka.

Sævarinn, 7.8.2009 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband