Sjöllum settir úrslitakostir?

Hefur forysta Samfylkingarinnar (mínus varaformaðurinn) loksins sett  Sjálfstæðismönnum úrslitakosti varðandi stjórnarsamstarf? Ef svo er þá hlýtur það að fela í sér eftirfarandi ef Samfylkingin ætlar að vera trú sínum hugsjónum:

1. Aðildarviðræður við Evrópusambandið.

2. Mannaskipti í bankastjórn og bankaráði Seðlabankans.

3. Draga til baka ákvarðanir heilbrigðisráðherra um kostnaðarþáttöku sjúklinga og lokun sjúkrahúsa um land allt.

4. Að ríkistjórnin standi við vísitölutengingu bóta elli og örorkulífeyrisþega nú þegar verðbólgan er að nálgast 20 prósentin.

5. Afsögn fjármálaráðherra.

Þetta hljóta að vera skilyrði Samfylkingarinnar fyrir áframhaldandi stjornarsetu ef hún vill taka tillit til grasrótarinnar í flokkknum.


mbl.is Niðurstaða á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allt er þetta gott og blessað, en er þóalls ekki nóg. Það verður líka að stöðva verðtryggingu lána af íbúðarhúsnæði hið snarasta. Það er hægt með einfaldri lagasetningu.

sleggjudómarinn (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 22:51

2 identicon

Þingsályktunartillögu sem Vinstri Græn lögðu fram í upphafi þings 2005:

“(5. mál á 132. löggjafarþingi, þskj. 5.)

Með hliðsjón af mikilvægi þess að:
a. verðbólga náist sem fyrst niður fyrir viðmiðunarmörk Seðlabankans,
b. stöðugleiki haldist á vinnumarkaði og kaupmáttur launa verði varðveittur,
c. sjálfbær þróun verði leiðarljós í orku- og atvinnumálum og þróun þjóðlífsins almennt,
d. tryggja útflutnings- og samkeppnisgreinum viðunandi starfsskilyrði,
e. bæta skilyrði til nýsköpunar í atvinnulífinu og til uppbyggingar sprotafyrirtækja,
f. draga úr viðskiptahalla og erlendri skuldasöfnun,
g. viðhalda stöðugleika í fjármálakerfinu og halda aftur af skuldasöfnun heimilanna,
h. jafnvægi náist á nýjan leik í þjóðarbúskapnum almennt,



ályktar Alþingi að fela ríkisstjórninni að grípa til eftirfarandi aðgerða:

1. Gefa út formlega yfirlýsingu um að hvorki verði af hálfu opinberra aðila stuðlað að né veitt leyfi fyrir frekari stórvirkjunum né uppbyggingu meiri orkufrekrar stóriðju en þegar er í byggingu, a.m.k. til ársloka 2012. Áhersla verði þess í stað lögð á fjölbreytta smáa og meðalstóra iðnaðarkosti af viðráðanlegri stærð fyrir hagkerfið og aðstæður viðkomandi byggðarlaga.

2. Beina þeim tilmælum til Fjármálaeftirlitsins að hugað verði vandlega að áhættumati í bankakerfinu, svo sem hvað varðar áhrif af snöggri gengislækkun krónunnar eða lækkun fasteignaverðs. Markmiðið verði að hraður vöxtur útlána að undanförnu skapi ekki hættu fyrir efnahagslífið og farið verði yfir eiginfjárlágmörk og áhættugrunn fjármálastofnana í því ljósi.

3. Beina þeim tilmælum til Seðlabanka Íslands að íhuga vandlega að beita aukinni bindiskyldu hjá innlánsstofnunum, a.m.k. tímabundið, til að draga úr þenslu á peningamarkaði og huga að öðrum aðgerðum sem stutt geta viðleitni stjórnvalda til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001.

4. Yfirfara aðferðir við mælingar á þróun verðlags og athuga sérstaklega hvernig vænlegast sé að meta húsnæðiskostnað í vísitölu neysluverðs.

5. Tryggja aðhald í ríkisfjármálum og slá á þenslu með því að leggja fyrir Alþingi nú í haust árið 2005 tillögur um að falla frá eða fresta eftir atvikum a.m.k. hluta þeirra almennu skattalækkana sem lögfestar voru fram í tímann í desember 2004. Í staðinn komi aðgerðir til að bæta stöðu tekjulægstu hópa samfélagsins og barnafjölskyldna.

6. Efna til víðtæks samstarfs við aðila vinnumarkaðarins, samtök bænda, neytenda, öryrkja, og aldraðra, og aðra þá aðila sem efni standa til um aðgerðir þessar og þátttöku í að tryggja á nýjan leik efnahagslegan og félagslegan stöðugleika.

Reynir (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 02:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband